Logo
7. febrúar 2025

Forskóladagurinn 2025

Hljóðfærakynning fyrir Forskóla 2 og Kaffisala Strengjasveitarinnar

Fólk á gangi Tónlistarskólans á Forskóladeginum 2024

Við efnum til hinnar árlegu hljóðfærakynningar fyrir nemendur Forskóla 2 n.k. laugardag þann 8. febrúar. Nemendur í Forskóla 2 eru öll börn í Reykjanesbæ í 2. bekk grunnskólanna. Dagskráin hefst kl.10:30 í Stapa, Hljómahöll, með stuttum tónleikum forskólanemendanna sem flytja 2 hressileg lög við undirleik kennarahljómsveitar Tónlistarskólans. Að tónleikunum loknum fá nemendurnir kynningar í stofum Tónlistarskólans á þeim hljóðfærum sem hæfa ungum börnum að hefja nám á að loknu forskólanáminu. Það verða kennarar skólans sem sjá um kynningarnar ásamt nokkrum nemendum. Nemendur forskólans fá að handleika og prófa hljóðfærin og munu tónlistarkennararnir leiðbeina þeim við það. Hljóðfærakynningunni og þar með dagskránni, lýkur kl.12:15.
Lúðrasveit TR mun leika nokkur lög og foreldrafélag Strengjasveitar TR verður með vöfflu- og kaffisölu meðan á hljóðfærakynningunni stendur, en það er fjáröflun vegna tónleikaferðar Strengjasveitarinnar til Danmerkur og Svíþjóðar sem farin verður um miðjan maí.

Deila frétt

Share by: